Á hvaða verði?

Eru allir orðnir spólandi geggjaðir á  þessu blessaða landi?

Skiptir engu máli að Verne-holding er að stærstum hluta í eigu Björgólfs Þórs Björgólfssonar. Allir Íslendingar vita hvað hann hefur gert fyrir íslenskt samfélag.

Rætt er um sérstakar ívilnanir fyrir fyrirtækið, hverjar ætli þær séu?

Á hvaða verði skyldi þetta fyrirtæki fá raforkuna sína, eða ætli það sé leyndarmál eins og hjá álfyrirtækjunum?  Ég kíkti sem snöggvast inná vef OR og Landsvirkjunar, hér má sjá verðin sem ég fæ mína orku á og til samanburðar má hér sjá einingaverð grunnorkusamninga hjá Landsvirkjun. Ef einhver veit þetta þá endilega ekki liggja á upplýsingunum.

Að búa til störf í landinu er hið besta mál, en að draga hrungosa á borð við Björgólf Þór að veisluborðinu finnst mér bara hreint ekki eins gott mál, og lái mér hver sem vill.

                     

 

 

 

 

          

 


mbl.is Samið við Verne Holding
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband