Húrra fyrir mótmælendum!!!!!!
1.12.2008 | 22:02
Þrefalt húrra fyrir fólkinu sem þorir að sýna aulunum að við ætlum ekki að gleyma. Þetta voru í alla staði friðsamleg mótmæli, það vantar meira af svona mótmælum og ég spái því að eftir því sem atvinnulausum fjölgar, þeim mun meira verði af svona friðsamlegum hústökum.
Lögreglan á líka mikið hrós skilið fyrir hvernig þeir tóku á málum, enda vita þeir jafnvel og við að þeir munu ekki ráða við neitt ef það myndast loksins fjöldahreyfing um nákvæmlega svona friðsamleg mótmælil
|
Mótmælendur farnir út |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook


lydveldi
gullvagninn
markusth
snorrima
vefritid






Athugasemdir
Mér finnst þú orðljótur og ekki sýna ábyrgð í þínum skrifum. Við köllum ekki þá sem eru ekki sammála okkur "aula"!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! mótmælin í dag voru EKKI friðsamleg ... þegar kastað er eggjum og málningu auk þess að ryðjast inn í húsnæði .. er það ekki friðsamlegt, það er bara fáránleg framkoma sem gefur mínus í kladda mótmælenda. Það að EF einhver dirfist að hóta lögreglunni (EF SVO FÆRI) þá er það ávísun á að fá 80% þjóðarinnar á móti þeim sem slíkt myndu gera/hugsa sér/plana. Svo sýnum stillingu, styðjum lögregluna okkar, sýnum kurteisi og berjumst með orðum EKKI ólátum og kjánagangi
Katrín Linda Óskarsdóttir, 2.12.2008 kl. 00:31
Ætlarðu að segja mér Katrín að þér finnist ekki eins og okkur öllum að þeir sem öllu ráða hér og eru búnir að klúðra öllu sem mögulega er hægt að klúðra, séu aular?? Mér finnst það ekki mjög fast að orði kveðið. Það er líka allveg 100% klárt mál að það er enginn að berjast gegn lögreglunni, við vitum öll að hún er að gera sitt allra besta við afar erfiðar aðstæður og er bara að standa sig ansi vel, að mínu mati.
Torfi Magnússon, 3.12.2008 kl. 18:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.