Á hvaða verði?
24.10.2009 | 09:02
Eru allir orðnir spólandi geggjaðir á þessu blessaða landi?
Skiptir engu máli að Verne-holding er að stærstum hluta í eigu Björgólfs Þórs Björgólfssonar. Allir Íslendingar vita hvað hann hefur gert fyrir íslenskt samfélag.
Rætt er um sérstakar ívilnanir fyrir fyrirtækið, hverjar ætli þær séu?
Á hvaða verði skyldi þetta fyrirtæki fá raforkuna sína, eða ætli það sé leyndarmál eins og hjá álfyrirtækjunum? Ég kíkti sem snöggvast inná vef OR og Landsvirkjunar, hér má sjá verðin sem ég fæ mína orku á og til samanburðar má hér sjá einingaverð grunnorkusamninga hjá Landsvirkjun. Ef einhver veit þetta þá endilega ekki liggja á upplýsingunum.
Að búa til störf í landinu er hið besta mál, en að draga hrungosa á borð við Björgólf Þór að veisluborðinu finnst mér bara hreint ekki eins gott mál, og lái mér hver sem vill.
|
Samið við Verne Holding |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jafnaldrar.
23.8.2009 | 08:51
|
Þekktir ærslabelgir verða settir í sjónvarpsbúning |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gott
14.8.2009 | 09:49
Gott
Gott
Gott.
Þarf að segja eitthvað meira? Þetta er jákvæðasta frétt sem ég hef lesið núna í marga mánuði og væri óskandi að allt myndi rætast. Verst er að þetta blessaða Icesave mál er bara enn einn skrípaleikurinn til að slá ryki í augu okkar kjánanna í landinu. Auðvitað fer þetta á endanum í gegnum þingið og við verðum látin borga upp í topp, annað er gjörsamlega óhugsandi, hver sem situr við völd, vinstri eða hægri.
Auðvitað förum við á endanum inn í ESB, hver sem situr við völd, vinstri eða hægri, upp eða niður.
Á endanum gerum við alltaf það sem ESB og alþjóðabankinn vill.
|
Icesave ógnar ESB-aðild |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimspekilegar vangaveltur........
2.8.2009 | 17:24
Í skoti utan í grjótinu
Am Em
anganþrungnu, þríhyrndu
C F7 C
hvar þrifnaðar stundar biggi óstórar vandanir.
Dm Em
Og í pakkhúsi við höfnina,
Dm C
hlandgræna dröfnina
Dm Am D G
þar eru helvítis göfugir kamrar, hurða andvanir.
C C/B Am G
En þar gái ég mér á lókinn með göfgina í sálinni,
F F/E Dm C
gulir eru straumar þínir hland mitt í skálinni.
F – F/E – Dm – G – C
Aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
Og aldrei tappa þar háklerkar
af, nei, þetta eru lágkamrar.
Allskyns lausapakks og ræfla hland’ vanir.
En sértu nú alveg í spreng
og hún keyri þig í keng,
klerkur minni, dökk eða ljós þar fæst ekki leyfi slíkar landanir.
En þar gái ég...
F C Dm C
Bláir eru dalirnir þínir byggð mín í Norðurmýri.
|
Kveikt í kömrum á Akureyri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Alltof margir.
22.7.2009 | 08:33
|
Mikið að gera hjá lögreglu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
252.000.000.000
5.6.2009 | 15:21
Tvöhundruðfimmtíuogtvöþúsund milljónir í vexti á sjö árum, bara fyrstu sjö árunum, þangað til við byrjum að borga af höfuðstólnum.
Það kemur ekki fram í fréttinni til hversu langs tíma lánið er, en það skiptir jú svolítið miklu máli fyrir heildarupphæðina.
Eigum við að borga 10 eða 50 milljarða á ári af höfuðstólnum að sjö árum liðnum?
Er lánið kannski verðtryggt?
Ég er enginn reiknimeistari en í fljótu bragði sýnist mér þetta muni vera vel á annað þúsund milljarðar.
2000.000.000.000.
Falleg tala, ekki satt?
|
Engin Icesave-greiðsla í 7 ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fjármögnun?
25.5.2009 | 14:47
Og maður spyr sig, hvaðan kemur fjármagnið? Fyrst maður spyr sig þeirrar spurningar verður maður að spyrja sig i framhaldi, hver gæti mögulega haft ávinning af átökum á þessu svæði?
Mig grunar stórfyrirtæki sem framleiða vopn og hergögn.
Og hvaða fyrirtæki eru það? Þar kemur Google að góðum notum.
T.D.
Rolls Royce
Carlyle Group
Boeing
General Electric
Og síðast en ekki síst
Alcoa
Listinn er að sjálfsögðu mun lengri en þetta eru nöfnin sem stukku fyrst á mig
|
Tryggja fullveldið og sósíalismann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Éttu hund, afi!
22.5.2009 | 14:25
Þennan lífeyrissjóð er ég búinn að borga í árum saman, upphæðina er ég ekki með á hreinu en hún hleypur á milljónum. Þarna inni eru starfsemenn á spena sem þiggja milljónir á milljónir ofan í laun og hlunnindi. Launin þiggja þeir fyrir að spila fjárhættuspil fyrir sparnaðinn minn. Þegar þeir tapa í spilinu senda þeir bréf til kollega minna í sjóðnum sem líka eru búnir að borga árum og áratugum saman sjóðinn og tilkynna að því miður þurfi nú að lækka greiðslur til þeirra. Á móti kemur að þeir geta átt von á hærri greiðslum frá Tryggingastofnun, og hvaðan koma þeir peningar? Jú einmitt, úr vasa þessara sömu lífeyrisþega í gegnum skattgreiðslur af þeim réttindum sem þeir voru búnir að vinna sér inn.
Ég er kannski svona vitlaus, en ég skil ekki svona lógík. Hvernig er hægt að réttlæta það að lífeyrissjóður sem búinn er að tapa milljörðum á ruglinu í stjórnendum hans geti velt ábyrgðinni yfir á ríkissjóð sem stendur vægast sagt höllum fæti.
Pabbi minn er kominn á lífeyrisaldur. Hann hefur síðustu 20 árin eða svo starfað sjálfstætt og svosem ekki mikið verið að stressa sig á að borga inn í þessa skítahít. Lífeyrissjóðnum hans reiknast svo til að hann skuldi þeim eitthvað á aðra milljón króna. Þessa peninga vilja þeir fá og það strax. Reglulega berast kallinum hótunarbréf frá lögfræðingum. Pabbi hefur aldrei verið hátekjumaður og á því ekki mikil áunnin réttindi í sjóðnum og ef hann myndi borga það sem þeir heimta myndi mánaðagreiðslan kannski hækka um 1000 kall, mínus þessi 10% sem gera þá 900 krónur á mánuði. En sjóðurinn gefur sig ekki, kallinn SKAL borga.
Ég skil bara alls ekki þetta kerfi, og veit svei mér þá ekki hvort mig langar að skilja það.
|
Lífeyrir lækkar um mánaðamót |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Upp með maze-ið
22.5.2009 | 11:20
|
Þeir sitja sem fastast |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


lydveldi
gullvagninn
markusth
snorrima
vefritid






